Fara í efni

Fræðslumyndbönd fyrir starfsfólk í upplýsingagjöf

Nánari upplýsingar
Titill Fræðslumyndbönd fyrir starfsfólk í upplýsingagjöf
Lýsing

Ferðamálastofa hefur útbúið stutt fræðslumyndbönd á ensku og íslensku fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva og aðra sem starfs síns vegna koma að upplýsingagjöf til ferðafólks. Til að byrja með eru birt 3 myndbönd sem fjalla m.a. um hvernig veita skal góða þjónustu, mismunandi menningarheima og almenna upplýsingagjöf.


Þjónusta og samskipti - Áslaug Briem

Áslaug Briem fer yfir helstu atriði varðandi þjónustu og samskipti við gesti okkar. Hún er verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu og vinnur við Vakann, gæða- og umhverfisvottunarkerfi ferðaþjónustunnar.

Almenn upplýsingagjöf – Heimir Hansson

Heimir Hansson stýrir Upplýsingamiðstöð Vestfjarða á Ísafirði og hefur langa reynslu í upplýsingagjöf til ferðafólks. Hann fer hér yfir hvernig gagnagrunnur Ferðamálastofu yfir ferðaþjónustuaðila nýtist til að leita, með einföldum hætti, eftir gistingu, afþreyingu, menningu og annari þjónustu fyrir ferðafólk um allt land.

Leiðin að hjarta gestsins - Margrét Reynisdóttir 

Margrét rekur ráðgjafarfyrirtækið Gerum betur og sérhæfir sig í fræðslu um þjónustu, þjónustugæði og mismunandi menningarheima.

Öll myndböndin á einum stað


 

 

 

Flokkun
Flokkur Fræðslurit og handbækur
Útgáfuár 2019
Útgefandi Ferðamálastofa
Leitarorð upplýsingamiðstöð, upplýsingamiðstöðvar, fræðsla, ráðgjöf, upplýsingagjöf, öryggi, upplýsingar