Umhverfis Helgafell í Hafnarfirði Gönguleið
Gangan upp á Helgafell í Hafnarfirði er afar vinsæl meðal borgarbúa, en það er einnig skemmtilegt að ganga hringinn í kringum þetta tignarlega fjall.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Hafnarfjörður
Upphafspunktur
Bílastæði við Helgafell
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
- Möl
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gangan upp á Helgafell í Hafnarfirði er afar vinsæl meðal borgarbúa, en það er einnig skemmtilegt að ganga hringinn í kringum þetta tignarlega fjall. Leiðin hefst á bílastæðinu við Helgafell og gengið er eftir vel merktum stíg í átt að Helgafelli og áfram í gegnum Valahnúkaskarð. Í stað þess að taka stefnu upp fjallið er haldið áfram eftir slóðanum umhverfis það. Leiðin er fjölbreytt og greiðfær, þar sem melar, sandar og klappir leysa hvert annað af. Þegar búið er að ganga rúmlega hálfa austurhlið fjallsins blasir við klettadrangur sem nefnist Riddarinn sem gaman er að staldra við og virða fyrir sér. Slóðanum er fylgt áfram meðfram austur- og suðurhlið Helgafells þar til komið er aftur að upphafsstígnum. Þaðan er gengið til baka að bílastæðinu þar sem ferðin hófst.