Úlfarsfell Gönguleið
Úlfarsfell er vinsælt og aðgengilegt fell á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar, með gönguleiðum sem henta allt árið og glæsilegu útsýni frá Stórahnúk.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Mosfellsbær, Reykjavík
Upphafspunktur
Bílastæði við Úlfarsfellsveg
Merkingar
Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Úlfarsfell er þægilegt og skemmtilegt fell sem hentar vel til göngu allt árið um kring og er við flestra hæfi. Það er auðvelt að komast þangað og fljótlegt að fara upp og niður. Í þessari göngu er lagt af stað frá bílastæði ofan við Úlfarsárdalshverfið í Reykjavík, sunnan megin við Úlfarsfellið. Bílastæðið er kennt við Leirtjörn og þaðan er greinilegum slóða fylgt upp fellið og upp á hæsta hluta þess sem kallaður er Stórihnúkur. Þar uppi er útsýnispallur þar sem hægt er að setjast niður og njóta glæsilegs útsýnis yfir höfuðborgina. Utan í fellinu eru nokkrir slóðar sem hægt er að feta aftur niður en hér er gömlum vegslóða fylgt niður að bílastæðinu. Úlfarsfell er á mörkum Mosfellsbæjar og Reykjavíkur og rís hæst 296 metra yfir sjávarmáli. Berggrunnur fellsins er frá miðbiki ísaldar, um tveggja milljóna ára gamalt berg, og skiptast á hraunsyrpur sem myndast hafa á hlýskeiðum og móbergs- og jökulbergslög frá jökulskeiðum. Flóran á leiðinni upp Úlfarsfell einkennist af mólendi auk þess sem mikið hefur verið gróðursett af trjám í hlíðum fellsins að ógleymdri sem lúpínunni sem hefur komið sér vel fyrir.