Fara í efni

Reykholt söguleið

Gönguleið um Reykholt söguhring er fróðleg og skemmtileg.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Borgarbyggð
Upphafspunktur
N64°66318 W021°292
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
30 mínútur
Yfirborð
  • Hellulögn
  • Steinlögn
  • Möl
  • Gras
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
Möguleiki er að fá kort af gönguleið hjá upplýsingastofu hjá Snorrastofu og einnig er hægt að ná í app til að fá leiðsögn um svæðið.Salerni er aðgengilegt á gönguleiðinni sem og ruslatunnur. Þjónustu er að finna á Snorrastofu og Fosshótel Reykholt býður upp á gistingu, veitingar og veitir upplýsingar til gesta.
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Mikil vinna hefur verið unnin við uppsetningu skilta og göngustíga en hægt er að ganga inn í Reykholtsskóg sem staðsettur er fyrir ofan þorpið. Alla þjónustu má finna á Snorrastofu og möguleiki er að fylgja forritinu „Snorri" þegar gengið er um svæðið en það er skemmtileg viðbót við gönguna. Reykholt í Borgarfirði er þekktur staður fyrir ferðamenn og íbúa en þar er að finna Snorralaug, forna og friðlýsa laug sem er kennd við Snorra þó svo að sagt sé í Landnámu að laug hafi verið þar síðan frá árinu 960. Kirkjurnar á svæðinu eru tvær, sú eldri er timburkirkja sem stendur við gönguleiðina en sú nýrri var vígð árið 1996 og er hún mikið notuð, t.d. í tónleikahald en Reykholtshátíð er haldin á ári hverju. Reykholtsskógur er fyrir ofan kirkjurnar en þar er að finna forna þjóðleið sem fer í gegnum og meðfram skóginum. Snorrastofa er svo upplýsingamiðstöð þar sem hægt er að finna leiðsögn, fyrirlestra og sýningar. Svæðið hefur því mikið upp á að bjóða, hvort sem það sé fyrir gesti sem eru í leit að náttúru eða sögu.