Fara í efni

Ólafsvík skógrækt gönguleið

Gönguleið um skógræktina í Ólafsvík og inn í þorpið.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Snæfellsbær
Upphafspunktur
N64°53.3401 W023°41.2849
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Bundið slitlag
  • Möl
  • Trjákurl
  • Gras
Hindranir
  • Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
  • Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
Hættur
  • Vað - Óbrúaður lækur/á, eða votlendi/mýrar
  • Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
  • Tjaldsvæði
Tjaldsvæði er við upphaf leiðarinnar og þar er góð þjónusta.Sorptunnur eru svo á leiðinni þegar komið er inn í þorpið.
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gönguleið um útjaðar Ólafsvíkur og inn í miðsvæði bæjarins er mjög skemmtileg og fjölbreytt. Innviðir eru til staðar við tjaldsvæði og margir áningastaðir á gönguleiðum. Upplýsingaskilti eru einnig víða að finna og leiktæki fyrir allan aldur. Göngusvæði er því fyrir fjölbreyttan hóp gesta og íbúa og tilvalið að njóta. Tjaldsvæði er staðsett við útjaðar Ólafsvíkur að austanverðu en þar er að finna salerni, sturtu, rafmagn, eldunaraðstöðu og úrgangslosun. Leiktæki eru á svæðinu en tjaldsvæði er skjólgott og er um 10 mínútna ganga inn í miðbæ Ólafsvíkur. Gestir sem ganga um þær fjölmörgu gönguleiðir munu upplifa fallegan gróður, marga áningastaði, leiktæki og fallega náttúru. Ólafsvík gönguleið er fjölbreytt og skemmtileg leið. Skógræktarfélag Ólafsvíkur hefur lagt mikið í skógræktinga og tengingu við bæinn en einnig við gönguleið upp Enni og fjalllendi fyrir ofan Ólafsvík. Upplýsingar á gönguleið eru fjölmargar, útsýni yfir Ólafsvík og skógrækt. Svæðið er kjörið fyrir útivist en hægt er að finna fjölmarga afþreyingamöguleika á leiðinni eins og Frisbee-golf brautir, hoppubelg og fleira.