Fara í efni

Laugardalur Gönguleið

Létt og aðgengileg gönguleið sem hefst við Laugardalslaug. Leiðin liggur meðal annars meðfram Laugardalsvelli og inn í Grasagarðinn.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Laugardalslaug
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
  • Blandað yfirborð
  • Bundið slitlag
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
Í Grasagarðinum er kaffihús.
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gönguleiðin hefst við Laugardalslaug, stærstu útilaug landsins. Þaðan liggur leiðin meðfram Laugardalsvelli, þjóðarleikvangi Íslands, þar sem bæði landsleikir og aðrir stórviðburðir fara fram. Gengið er framhjá vellinum og breygt inn á Þvottalaugaveg, þar sem breiður og vel upplýstur göngustígur tekur við. Á vinstri hönd blasir við Valbjarnarvöllur og tennisvöllurinn í Laugardal, en á hægri hönd er gervigrasvöllur Þróttar. Stígurinn liggur áfram framhjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og að Grasagarð Reykjavíkur. Þar má njóta kyrrðar, fuglasöngs og fræðslu í grónu umhverfi innan borgarinnar. Í garðinum er einnig listaverkið Fyssa eftir Rúrí sem táknar kraft og hreyfingu náttúrunnar. Þegar haldið er áfram í gegnum garðinn er komið að Þvottalaugunum sem eru friðlýstar minjar um þvottastöð kvenna í Reykjavík frá 18. öld fram á 20. öld. Þar er einnig að finna skúlptúrinn Þvottakonan eftir Ásmund Sveinsson sem heiðrar störf kvenna við þvott og minnir á sögu svæðisins. Að lokum leiðir stígurinn framhjá tjaldsvæðinu í Laugardal áður en beygt er til vinstri inn á Sundlaugarveg og að Laugardalslaug.