Hjólahringur í Grafarholti og Úlfarsárdal Hjólaleið
Létt og skemmtileg hjólaleið frá Dalslaug þar sem farið er um Grafarholtið og Úlfarsárdal á góðum malbikuðum stígum.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Dalslaug
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Bundið slitlag
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Leiðin hefst við Dalslaug í Úlfarsárdal, þar sem hjólað er eftir góðum malbikuðum hjólastíg framhjá Lambhaga og áfram í gegnum undirgöng undir Vesturlandsveg. Beygt er til vinstri og stígnum fylgt áfram eftir Kelduleið, þar til farið er í gegnum næstu undirgöng aftur undir Vesturlandsveg. Þar tekur á móti manni ágætis brekka meðfram golfvellinum í Grafarholti, sem fær hjartað til að slá örlítið hraðar. Síðan er stígnum áfram fylgt meðfram hverfinu og hjólað framhjá Reynisvatni, þar sem hægt er að njóta kyrrðar og fallegs útsýnis. Þaðan liggur leiðin áfram meðfram Reynisvatnsvegi og síðan upp í gegnum Úlfarsárdalshverfið, þar sem hringnum er lokað og aftur komið að upphafspunkti við Dalslaug.