Fara í efni

Hjarta Hafnarfjarðar Gönguleið

Þessi skemmtilega gönguleið í Hafnarfirði hefst meðfram ströndinni og liggur um gamla bæinn með sínum litríku húsunum og fallegum kirkjum.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Hafnarfjörður
Upphafspunktur
Strandstígur
Erfiðleikastig
Aðgengi fyrir alla
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Bundið slitlag
Hættur
Umferð bíla
Þjónusta á leiðinni
Salerni
Verslanir og kaffihús
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gönguleiðin hefst við strandstíginn í Hafnarfirði með útsýni yfir höfnina. Meðfram sjónum má njóta náttúrunnar og lífsins við hafið áður en leiðin beygir upp að Hellisgerði, töfrandi garði með hraunmyndunum, mosavaxinni náttúru og fallegum göngustígum sem minna á ævintýraheim. Frá Hellisgerði liggur leiðin áfram í gegnum gamla bæinn með sínum litríku timburhúsum. Gengið er framhjá Byggðarsafni Hafnarfjarðar, sem veitir innsýn í daglegt líf fyrr á tímum, Fríkirkjunni og Hafnarfjarðarkirkju. Leiðin liggur einnig í gegnum miðbæ Hafnarfjarðar með skemmtilegum verslunum og kaffihúsum. Á gönguleiðinni eru einnig nokkur skreytt hjörtu þar sem tilvalið er að staldra við. 
Fyrir þau sem vilja lengja gönguna er hægt að taka auka hring að Víðistaðatúni, sem er skemmtilegt útivistarsvæði fyrir fólk á öllum aldri. Einnig er hægt að labba hringinn í kringum Lækinn og að gömlu rafstöðinni, eða labba upp að Hamrinum og njóta útsýnis yfir Faxaflóa.