Himnastiginn, Víghóll og Heljarslóð Gönguleið
Leiðin frá Digraneskirkju upp að Víghóli um Himnastigann er skemmtileg og söguleg göngu með 207 tröppum, víðáttumiklu útsýni og jarðfræðilegum kennileitum, áður en haldið er niður leið sem kallast Heljarslóð.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Kópavogur
Upphafspunktur
Digraneskirkja
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Bundið slitlag
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Engin þjónusta
- Salerni
Salerni í íþróttahúsi Digranes og Digraneskirkju
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Frá Digraneskirkju er gengið að Himnastiganum sem er tröppustígur sem liggur úr Kópavogsdal og upp á Digranesheiði. Tröppurnar eru 207 talsins, hæðarmismunur tæpir 52 metrar og lengdin á tröppunum um 360 metrar. Himnastiginn er sérstaklega vinsæll meðal göngu- og hlaupafólks þar sem hann hentar vel til þolæfinga. Þegar komið er upp tröppurnar liggur leiðin enn hærra og upp að Víghól. Mjög víðsýnt er frá Víghóli en svæðið var friðlýst sem náttúruvætti árið 1983. Þar er að finna jökulsorfnar grágrýtisklappir, svokölluð hvalbök. Jökulrákirnar segja til um skriðstefnu jökulíssins sem lá yfir Kópavogi í lok ísaldar. Þarna er útsýnisskífa ásamt skilti sem segir frá jarðsögu svæðisins. Að því búnu er gengið yfir að íþróttahúsinu Digranesi og niður kræklóttan göngustíg sem margir kalla Heljarslóð, alla leið niður að Kópavogslæk. Þaðan er síðan annað hvort farið yfir Digranesveg og beint að Digraneskirkju á stígunum neðst í Kópavogsdal eða genginn spölur upp með Digranesvegi og farið yfir hann til móts við Hlíðarveg. Gangan endar svo þar sem hún hófst, við Digraneskirkju. Á veturna getur verið snjór og hálka á þessum stígum og því er skynsamlegt að nota göngubrodda.