Hjólað um Hafnarfjörð Hjólaleið
Hjólaleið frá Ásvallalaug í Hafnarfirði um Hvaleyrarvatn með bæði malbikuðum og malarstígum í fallegu bæjarumhverfi og náttúru.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Hafnarfjörður
Upphafspunktur
Ásvallalaug
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Möl
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
- Umferð hrossa
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Leiðin hefst við Ásvallalaug í Hafnarfirði. Þaðan er hjólað í átt að golfvellinum Keili, þar sem fallegt útsýni tekur á móti hjólafólki. Haldið er áfram eftir Hvaleyrarbraut þar til komið er að gatnamótunum við Ásbraut og hjólað er fram hjá Suðurbæjarlaug.
Til að forðast brattari brekku er haldið áfram eftir Hvammabraut, þar sem hjólað er fram hjá kirkjugörðum bæjarins og síða er farið yfir brúna yfir Reykjanesbraut. Leiðin heldur áfram meðfram Kaldárselsvegi, þar sem stígurinn liggur fram hjá hesthúsunum og gróðrarstöðinni Þöll. Síðan er næsti afleggjari tekinn til hægri og þaðan farið inn á malarstíg, sem liggur í átt að Kjóadal. Stígnum er fylgt sem síðan liggur vestan megin við Hvaleyrarvatn. Þetta svæði er gróið og rólegt og býður upp á einstaka náttúruupplifun. Frá Hvaleyrarvatni er hjólað á malarvegi sem leiðir aftur niður að Völlunum í Hafnarfirði.
Að lokum er komið aftur að upphafsstað við Ásvallalaug.