Fara í efni

Álfahringur í Hafnarfirði Hjólaleið

Falleg hjólaleið sem hefst við Hellisgerði og liggur í gegnum Víðistaðatún, meðfram hrauni, um hafnarsvæðið og strandstíginn í Hafnarfirði.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Hafnarfjörður
Upphafspunktur
Hellisgerði
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Bundið slitlag
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Umferð bíla
Þjónusta á leiðinni
Sorplosun
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þessi hjólaleið hefst í gróna umhverfi Hellisgerðis, friðsæls garðs í hjarta Hafnarfjarðar. Þaðan er hjólað eftir Hellisgötunni í suðurátt þar til komið er að Víðistaðatúni, víðáttumiklu útivistarsvæði með fjölbreyttu leiksvæði og göngustígum. Stígnum er fylgt í gegnum túnið í átt að Víðistaðakirkju og síðan beygt til vinstri á stíginn meðfram hrauninu. Næst er farið yfir götuna og út Skjólvang, þar sem leiðin liggur að Hrafnistu. Við Hrafnistu er beygt til vinstri og hjólað eftir Herjólfsgötu þar til komið er að Brúsastöðum. Þar tekur við falleg strandleið sem leiðir meðfram sjónum. Hjólað er framhjá Sundhöll Hafnarfjarðar og áfram eftir Norðurbakka og Fjarðargötu. Hér gefst líka frábært tækifæri til að staldra við, njóta útsýnisins og fylgjast með hafnarstarfsemi eða fuglalífi við sjóinn. Frá Fjarðargötu er beygt inn á Lækjargötuna og haldið áfram til hægri við Brekkugötu. Leiðin liggur nú í átt að Flensborgarskóla og meðfram Hamrinum, þar sem tilvalið er að njóta útsýnis yfir bæinn og náttúruna í kring. Haldið er áfram með því að beygja til vinstri á Hringbraut og fylgja henni að Hamarkotslæk. Þar tekur við stígur sem liggur meðfram Hörðuvöllum, grænu svæði með opnu landslagi og leiksvæðum. Síðan er beygt til vinstri inn Tjarnarbraut og henni er fylgt að Hverfisgötu sem leiðir aftur að upphafsstaðnum.