Ægisíða Gönguleið
Létt og skemmtileg gönguleið meðfram Ægisíðunni sem hefst við Sundlaug Vesturbæjar og meðfram sjónum í áttina að Skerjafirðinum. Leiðin býður upp á fallegt útsýni yfir Faxaflóa og hentar öllum aldri.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Upphafspunktur
Sundlaug Vesturbæjar
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
Bundið slitlag
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
Kaffihús Vesturbæjar og Sundlaug Vesturbæjar eru við upphaf leiðar.
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þessi fallega 3 km gönguleið hefst við bílastæði við Sundlaug Vesturbæjar. Þaðan er gengið niður Hofsvallagötuna þar sem leiðin liggur í átt að Ægissíðunni. Þegar komið er niður að Ægissíðunni blasir við opin grasflöt og þar stendur útilistaverk eftir Ásmund Sveinsson sem nefnist Björgun úr sjavarháska. Við listaverkið er tilvalið að staldra við og njóta útsýnisins.
Leiðin meðfram Ægissíðunni er aðgengileg. Göngustígar eru breiðir og henta bæði göngufólki og þeim sem vilja njóta útiveru með barnavagna eða hjól. Umhverfið er friðsælt og gróið með fjölbreyttu fuglalífi og litlum beituskúrum sem minna á gamla tíma þegar sjósókn var hluti af lífinu við ströndina. Útsýnið yfir Faxaflóann er ákaflega fallegt og þar blasa Bessastaðir á Álftanesi við. Á leiðinni eru jafnframt fjölmargir bekkir sem bjóða upp á það að tylla sér og njóta útsýnisins. Þegar komið er að Skerjafirðinum er gengið til baka sömu leið upp Hofsvallagötuna og aftur að sundlauginni, þar sem göngufólk getur endað gönguna á kaffibolla eða jafnvel hressandi sundsprett í Vesturbæjarlauginni.