Fógetastígur í Gálgahrauni Gönguleið
Skemmtileg ganga í kringum Gálgahraun þar sem jarðmyndanir, fuglalíf og menningaminjar er að finna í hrauninu á leiðinni.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Garðabær
Upphafspunktur
Hraunsholt / Gálgahraun
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Í Garðabæ er ákaflega falleg gönguleið um Gálgahraun sem kallast Fógetastígur. Fógetastígur var hin forna leið milli Bessastaða og Reykjavíkur, kennd við embætti landfógeta, en landfógetar sátu jafnan á Bessastöðum. Lagt er af stað frá bílastæðinu við hringtorgið þar sem Vífilsstaðavegur og Hraunholtsbraut mætast. Við upphaf göngunnar er fræðsluskilti um sögu staðarins og fornar leiðir sem fróðlegt er að lesa. Gangan liggur í hring og er fyrst gengið með fallega vogskorinni ströndinni og að Gálgaklettum. Í Gálgahrauni leynast fjölmargir hellisskútar, bollar, gjár og lautir. Þegar komið er að Lambhúsatjörn sveigir stígurinn til suðurs og síðan er gengið í átt að upphafsstað. Lengd leiðarinnar er um 5 km. Umrætt svæði er nyrsti hluti svokallaðra Búrfellshrauna sem runnu frá eldstöðinni Búrfelli fyrir rúmum 7.000 árum. Gálgahraun var friðlýst árið 2009 og er hraunið að mestu eins og það var þegar það rann og eru jarðmyndanir, gróðurfar og fuglalíf forsendur friðlýsingarinnar.