Fara í efni

Búðir-Búðaklettur-Frambúðir

Búðir er staðsett vestast í Staðarsveit á Snæfellsnesi þar sem finna má fjölbreytta náttúru.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Snæfellsbær
Upphafspunktur
N64°49.3046 W022°23.0755
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Möl
  • Hraun
  • Gras
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
Salerni er inn á Hótel Búðum
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Á Búðum var eitt sinn virkasti verslunastaður Snæfellsnes og blómlegt sjávarþorp en fornleifa sem fundist hafa, t.d. á Frambúðum, benda til að starfsemi allt frá fyrstu landnámi Íslands. Víðáttumikið hraun Búðahrauns nær austur í átt að sjó við Faxaflóa og vestur að Hraunlandsrifi. Gönguleið um Búðir-Frambúðir og Búðaklett er fjölbreytt náttúru upplifun. Náttúra svæðisins, í bland við þá sögu og minjar sem eru fyrir, gerir gönguleið um Búðir-Búðaklett og Frambúðir að einstakri upplifun. Merkingar á svæðinu eru til fyrirmyndar, þar sem stikur og vegvísar eru mjög greinilegir. Gönguleið frá Frambúðum og að Búðakirkju er nokkuð ógreinileg og sumstaðar engar merkingar um hvar væri best að ganga en einungis er um að ræða stutta leið. Búðahraun er á náttúruminjaskrá Umhverfisstofnunar yfir friðlönd á Íslandi en Búðir er einn af vinsælustu áfangastöðum Vesturlands. Hótel Búðir er vinsæll kostur þegar kemur að gistingu og veitingum, kirkjan á Búðum er gríðarlega vinsæl fyrir brúðkaup og er sú þekktasta kirkja á Vesturlandi. Svæðið í kring um Búðir er mjög vinsælt útivistarsvæði, með ljósum strandlengjum í bland við svarta strandlengju og gullfallega náttúru þar sem Snæfellsjökullinn gnæfir yfir svæðið.