Fara í efni

Barnaborgir

Barnaborgarhraun er úfið apalhraun frá nútíma, víða lyngi og kjarri vaxið, runnið frá Barnaborg.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Borgarbyggð
Upphafspunktur
N64°45.3335 W022°14.9905
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
  • Möl
  • Gras
  • Stórgrýtt
  • Hraun
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Eldvarp var í miðju hrauni en Barnaborgir eru tveir hraunhólar sem standa í miðju hrauninu. Skemmtilegt útivistarsvæði þar sem gönguleið liggur um hraunið og hægt er að njóta svæðisins, kyrrðinni og fegurð Snæfellsnes og Borgarbyggðar á sama tíma. Barnaborgir eru á náttúruminjaskrá Umhverfisstofnunar Íslands. Gönguleið um Barnaborgarhraun er greinileg en frá bílastæði eru þrep yfir girðingu en svo blasir við gestum greinilegur slóði sem leiðir gesti inn hraunið. Þegar komið er inn í hraunið taka við mjóir stígar sem geta verið hættulegir en tryggja þarf góðan skóbúnað áður en haldið er inn í hraunið. Þegar komið er að hraunhólunum tekur við smá grjótar undirlag en hægt er að ganga víða um svæðið og njóta umhverfisins, náttúru og kyrrðar sem svæðið hefur uppá að bjóða.