Fara í efni

Ferðaþjónusta í tölum - samantekt fyrir sumarið 2023

Í samantektinni Ferðaþjónusta í tölum – sumar 2023 má sjá samantekt um brottfarartalningar erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll, gistinætur á skráðum gististöðum, framboð og nýtingu á hótelum og nokkrar niðurstöður er varða dvöl ferðamanna á Íslandi s.s. um tilgang ferðar, dvalarlengd og heimsóknir eftir landshlutum.

Um 790 þúsund erlendir ferðamenn í sumar

Um 790 þúsund erlendir ferðamenn* komu til landsins um Keflavíkurflugvöll síðastliðið sumar (2023), um fimmtungi fleiri en í fyrrasumar (2022). Um er að ræða næstfjölmennasta ferðamannasumarið frá því mælingar hófust. Fjöldinn var um 98% af því sem hann var sumarið 2018 sem var metsumar hvað varðar fjölda ferðamanna.

Bandaríkjamenn voru langfjölmennastir, 300 þúsund talsins eða nærri tveir af hverjum fimm ferðamönnum. Um er ræða annað sumarið frá því talningar hófust sem fjöldi Bandaríkjamanna er um 300 þúsund en áður höfðu þeir mælst um 293 þúsund sumarið 2018. Þjóðverjar voru í öðru sæti, um 60 þúsund talsins eða álíka margir og þeir voru sumrin fyrir Covid-19 faraldurinn (2018, 2019). Í þriðja sæti voru Pólverjar, um 52 þúsund en áður höfðu þeir mest mælst tæplega 29 þúsund að sumri til (2017 og 2018). Gera má ráð fyrir að stóran hluta Pólverja í sumar megi rekja til aukinnar ferðatíðni Pólverja búsettra hérlendis og fjölskyldna þeirra en framboð á flugi til og frá Póllandi hefur aldrei verið meira en í sumar. Í fjórða til fimmta sæti voru Frakkar (40 þús.) og Bretar (35 þús.).

Langflestir eða um 95% ferðamanna voru í fríi á Íslandi í sumar. Um 1,9% voru í heimsókn hjá vinum og ættingjum og um 1,4% í viðskiptatengdum tilgangi. Um 1,8% voru í annars konar tilgangi. Um níu af hverjum tíu heimsóttu höfuðborgarsvæðið, um átta af hverjum tíu Suðurland, um sjö af hverjum tíu Reykjanes, ríflega helmingur Vesturland, tæplega helmingur Norðurland og ríflega fimmtungur Vestfirði.

 





Meðalfjöldi gistinótta 8,6 nætur

Ferðamenn dvöldu að jafnaði 8,6 nætur á ferðalögum um Ísland í sumar eða jafnmargar nætur og í fyrrasumar (2022). Þegar horft er til dvalarlengdar sumrin 2018 og 2019 má sjá ívið styttri dvalarlengd en ferðamenn dvöldu að jafnaði 7,5 gistinætur sumarið 2018 og 7,8 sumarið 2019. Áhrifa Covid-19 faraldursins virðist því enn gæta en dvalarlengd erlendra ferðamanna á Íslandi lengdist til muna á tímum faraldursins.

Bandaríkjamenn sem vega þyngst vegna hárrar hlutdeildar, dvöldu að jafnaði 6,9 nætur sumarið 2023, álíka margar og í fyrrasumar. Af tíu fjölmennustu þjóðernunum dvöldu Þjóðverjar og Frakkar lengst eða 10,9 nætur að jafnaði. Þar á eftir komu Spánverjar, Ítalir og Hollendingar með dvalarlengd á bilinu 8,8 til 9,5 gistinætur. 

 

Gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum mælast fleiri en fyrir faraldur

Gistinætur á hótelum voru um 1,7 milljón talsins síðastliðið sumar (2023), tæplega 19 þúsund fleiri (+1,1%) en þær voru sumarið 2022 og 256 þúsund fleiri (+17.6%) en 2019, sumarið áður en heimsfaraldur Covid-19 skall á.

Um átta af hverjum tíu gistinóttum voru tilkomnar vegna erlendra ferðamanna en þær voru um 27 þúsund fleiri (+1,9%) en í fyrrasumar (2022). Jafnframt mældust þær 79 þúsund fleiri (+5,9%) en sumarið 2019.

Nýting herbergja á hótelum 87% í júlí og ágúst

Sumarið 2023 voru í boði um 11.730 herbergi á landinu öllu þegar mest var, þar af var tæplega helmingur (46,2%) á höfuðborgarsvæðinu. Framboðið á herbergjum var álíka mikið og í fyrrasumar (2022) en um 5-6% meira en árið 2019. Herbergjanýting á landsvísu var 80% í júní og 87% í júlí og ágúst. Nýtingin fór yfir 90% á Suðurlandi og Austurlandi í júlí og ágúst og á Suðurnesjum í ágústmánuði. Í öðrum landshlutum var hún á bilinu 81-88% í júlí og ágúst. Í júní var nýtingin á bilinu 72-83% en best var hún á Suðurlandi (83%) og Austurlandi (82%).

Gistinætur erlendra ferðamanna aldrei mælst svo margar að sumri til 

Gistinætur á skráðum gististöðum mældust um 4,3 milljón talsins síðastliðið sumar (2023) og hafa ekki mælst svo margar áður. Um er að ræða 8,6% fleiri gistinætur en í fyrrasumar (2022) og ríflega fimmtungi fleiri en sumarið 2019. Um tveimur af hverjum fimm gistinóttum var eytt á hótelum, um 14% á gistiheimilum og tæplega helmingi (46,3%) í annars konar gistingu. Gistinætur útlendinga í skráðri gistingu mældust tæplega 3,3 milljón talsins síðastliðið sumar eða 8,6% fleiri en sumarið 2018 og 11,1% fleiri en sumarið 2019. Aukninguna má að miklu leyti rekja til lengri dvalarlengdar ferðamanna en hún mældist fyrir faraldur. 

Gistinætur Íslendinga voru í kringum milljón síðastliðið sumar og helst það í hendur við þá þróun sem varð á tímum faraldursins að landsmenn fóru að nýta sér þjónustu gististaða í auknum mæli.

Opna Ferðaþjónusta í tölum - Sumar 2023

 

* Fjöldatölur taka mið af brottfarartalningum Ferðamálastofu og Isavia á Keflavíkurflugvelli og ber að skoða tölurnar með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér.