Fara í efni

Rannsóknaráætlun 2023-2025

Í reglugerð nr. 20/2020 um gagnaöflun og rannsóknir á sviði ferðamála er kveðið á um að Ferðamálastofa skuli móta og láta framkvæma rannsóknaráætlun til þriggja ára í senn. Rannsóknaráætlun stofnunarinnar fyrir tímabilið 2023-2025 liggur nú fyrir og verið staðfest af ferðamálaráðherra. Áætlunina má nálgast hér að neðan.

Rannsóknaráætlun 2023-2025

Fyrri áætlanir:

Ráðgjöf um rannsóknarverkefni 2024-26


Liður við undirbúning og gerð rannsóknaráætlunarinnar er aðkoma ráðgefandi nefndar um gagnaöflun og rannsóknir. Með samsetningu nefndarinnar er leitast við að draga að vísindalega þekkingu, kunnáttu og sérfræði hagsmunaðila í greininni.

Nefndina skipa:

  • Dr. Ragnar Árnason, prófessor emeritus við Háskóla Ísland
    • – tilnefndur af Ferðamálastofu, formaður.
  • Ingibjörg Sigurðardóttir, deildarstjóri Ferðamáladeildar og lektor við Háskólann á Hólum
    • – tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins.
  • Dr. Gunnar Þór Jóhannesson, prófessor við Háskóla Íslands
    • – tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins. 
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra
    • – tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
  • Diljá Matthíasardóttir, hagfræðingur SAF
    • – tilnefnd af Samtökum ferðaþjónustunnar.
  • Einar B. Árnason, sérfræðingur á skrifstofu ráðuneytisstjóra
    • – tilnefndur af menningar- og viðskiptaráðherra.
  • Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu
    • –tilnefndur af samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

 Ráðgjöf um rannsóknarverkefni 2023-25