Fara í efni

Vefnám um þjónustugæði í ferðaþjónustu

Vefnám 2008
Vefnám 2008

Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur nú sett á vefinn nýtt vefnám um þjónustugæði fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og starfsmenn þeirra. Að ýmsu þarf að huga þegar grunnur er lagður að rekstri fyrirtækja og eitt af því allra mikilvægasta eru þjónustugæði. Vefnám Impru í þjónustugæðum í ferðaþjónustu fjallar um grundvallaratriði þjónustugæða á hnitmiðaðan og aðgengilegan hátt. Um er að ræða tvær útgáfur af vefnáminu, annars vegar fyrir stofnendur eða framkvæmdastjóra fyrirtækjanna og hins vegar starfsmenn þeirra. Vefnámið er öllum opið og er hægt að nálgast það vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, www.nmi.is .

Tengill á vefnámið