Fara í efni

Þjóðin sendi myndband um allan heim

vídeó
vídeó

Þann 3. júní verður efnt til þjóðarátaks í tengslum við ?Inspired by Iceland?, markaðsátak ferðaþjónustunnar á erlendum mörkuðum  Ætlunin er að virkja íslenskan almenning og fá fólk til þess að vekja jákvæða athygli á Íslandi  undir heitinu Þjóðin býður heim. Átakið minnir á að nú er einmitt  rétti tíminn til að heimsækja landið því það hafi aldrei verið eins lifandi og síbreytilegt.

Tölvupósturinn virkjaður
Skorað er á fólk að senda tölvupóst á vini, kunningja, fjölskyldu og viðskiptafélaga erlendis með slóð á glænýtt og skemmtilegt myndband sem sýnir Ísland sem spennandi áfangastað. Fólk er hvatt til þess sérstaklega að senda tölvupóstinn milli kl. 13.00-14.00 að íslenskum tíma. Þeir sem ekki hafa tök á því að taka þátt á þeim tíma geta samt sem áður sent tölvupóstinn hvenær sem er dagsins og áfram næstu vikurnar! Hægt verður að nálgast tölvupóstinn á www.inspiredbyiceland.is.

Jungle Drum Emiliönu Torrini
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra upplýsti á fréttamannafundi í dag að myndbandið sem fólk yrði hvatt til þess að senda í þjóðarátakinu samanstæði af hressilegum og skemmtilegum myndum af fólki sem dansaði við Jungle Drum, lag og söng Emilíönu Torrini, við ólíkar aðstæður á Íslandi. Þar fléttast saman glettnar svipmyndir og myndskeið frá mörgum fallegustu stöðum landsins. Myndbandið er fjörugt og glaðlegt og til þess fallið að leiðrétta ranghugmyndir um land og borg sem er öskuþakin. Mikilvægt er að koma þeim skilaboðum á framfæri að landið sé opið og aðgengilegt, viðskipti ganga fyrir sig með eðlilegum hætti og þess vegna sé það  rétti tíminn nú um stundir að heimsækja land og þjóð. Hún sagði að myndbandið væri af því tagi að fólk myndi langa til að senda það áfram á Netinu til vina og kunningja í útlöndum. Vídeóið má sjá hér fyrir neðan.

Hvatt verður til þess af hálfu ríkisstjórnarinnar að fyrirtæki og stofnanir gefi starfsfólki sínu svigrúm, til að áframsenda skilaboðin og slóðina á myndbandið á sína tengiliði þennan dag.

Mikilvægi átaksins
Verkefni af þessu tagi eru fáheyrð og líklega ekki framkvæmanleg víða. Á Íslandi er á hinn bóginn hefð fyrir þjóðarsamstöðu gagnvart náttúruham-förum. Tilgangurinn með þjóðarátakinu er að fjölga ferðamönnum til Íslands, auka gjaldeyristekjur þjóðarbúsins og lágmarka þann skaða sem eldgosið í Eyjafjallajökli olli aðilum hérlendis í ferðaþjónustu og tengdum greinum. Það er því ákaflega mikilvægt að þjóðin taki höndum saman.

Kynningarmál
Til kynningar á verkefninu Þjóðin býður heim ? myndbandinu og samskiptum Íslendinga í kjölfarið við sína tengiliði  í framhaldinu ? mun Kastljósið á RÚV vera með umfjöllun um átakið miðvikudaginn 2. júní nk. Þar verður átakið og myndbandið kynnt, útskýrt hvernig á að senda það á vini og kunningja erlendis, og viðtöl verða fléttuð inn til að brjóta þáttinn upp. Þar með er átakið sjálft hafið og þjóðin tekur til við að bjóða heim.

Fimmtudaginn 3. júní mun síðan Stöð 2 (Ísland í dag) fylgja átakinu eftir með umfjöllun og viðtölum við fólk og forsvarsmenn fyrirtækja sem hafa sent út myndbandið.

Á allra næstu dögum verður haft samband við lykilaðila innan starfsmanna- og stéttarfélaga, ásamt öðrum félagasamtökum, í þeim tilgangi að virkja félagsmenn til að taka þátt og leggja verkefninu lið. Með þessu móti næst að hámarka þátttöku Íslendinga og í framhaldinu hámarka ávinning átaksins. Miklar gjaldeyristekjur eru í húfi og því í þágu okkar allra að vel takist þegar að því kemur að Þjóðin bjóði heim

Inspired by Iceland Video from Inspired By Iceland on Vimeo.