Fara í efni

Stjórn Vina Vatnajökuls auglýsir eftir styrkumsóknum

Frá Ásbyrgi. © arctic-images.com
Frá Ásbyrgi. © arctic-images.com

Stjórn Vina vatnajökuls hefur auglýst eftir umsóknum um styrki. Félagið styrkir rannsóknir, kynningar- og fræðslustarf sem stuðlar að því að sem flestir geti notið náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs.

Samtökin vilja setja í forgang verkefni sem stuðla að:

  • Aukinni þekkingu almennings á náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs
  • Samspili byggðarlaga innan þjóðgarðsins
  • Aukinni fræðslu og rannsóknum í Vatnajökulsþjóðgarði og grenndarsamfélagi hans
  • Samspili útivistar, menningar og Vatnajökulsþjóðgarðs
  • Tengslum barna og unglinga við náttúruna
  • Auknum skilningi umheimsins á mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs og einstakri náttúru hans á heimsvísu
  • Eflingu samkenndar um mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir nærliggjandi byggðir og alla landsmenn
  • Sjálfbærri ferðaþjónustu

Samtökin styrkja ekki:

  • Almennan rekstrarkostnað stofnana, félaga eða fyrirtækja
  • Einstaklinga vegna greiðslu skólagjalda, námsdvala eða skólaferðalaga

Þeir sem geta sótt um styrki eru:

  • Einstaklingar, samtök/tengslanet og bæði einkareknar og opinberar stofnanir. Umsækjendur mega búa hvort heldur er innan eða utan Íslands.
  • Þegar fleiri en einn aðili standa að verkefni, er það umsjónaraðili verkefnisins sem sækir um styrkinn, ekki einstakir aðilar að verkefninu.

Umsóknir og umsóknafrestur:

Lögð er áhersla á að umsóknir og fylgigögn með þeim berist VINUM Vatnajökuls áður en umsóknarfrestur rennur út. Að öðrum kosti eru þær ekki teknar til umfjöllunar. Gert er ráð fyrir að umsóknir hljóti afgreiðslu fagráðs VINA Vatnajökuls innan tíu vikna frá auglýstum skilafresti.

Umsóknum skal skila á vefsíðu VINANNA: www.vinirvatnajökuls.is þar sem allar nánari upplýsingar er að finna. Umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 30. september 2013.