Fara í efni

Mikil fjölgun erlendra ferðamanna um jól og áramót

flugeldariReykjavik
flugeldariReykjavik

Erlendum ferðamönnum sem dvöldu hérlendis yfir jól og áramót fjölgaði verulega á milli ára.

Rúmlega sex hundruð erlendir ferðamenn voru í Reykjavík um jólin á 6 hótelum og nokkrum gistiheimilum og er það 70% aukning frá fyrra ári. Þetta kemur fram í frétt á vef Samtaka ferðaþjónustunnar. Um áramótin voru nær öll hótel borgarinnar opin og mörg gistiheimili. A.m.k. 2.600 ferðamenn gistu þar sem er um 40% aukning frá fyrra ári. Til viðbótar má geta þess að fjölmargir ferðamenn eru hér milli jóla og nýárs án þess að dvelja yfir hátíðisdagana sjálfa. Stærstu hóparnir eru frá Japan, Bretlandi og Bandaríkjunum.


Ljósmynd: Ingi Gunnar Jóhannsson.