Fara í efni

Málþing um málefni Hveravalla

Hveravellir
Hveravellir

Húnavatnshreppur, Hveravallafélagið ehf,  Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Vaxtarsamningur Norðurlands vestra halda opið málþing um málefni Hveravalla laugardaginn 23. október næstkomandi klukkan 10:30-16:00 í Húnaveri. Leiðarstef málþingsins er þróun heilsársstarfsemi á Hveravöllum í átt til sjálfbærrar framtíðar með umhverfis- og náttúruvernd að leiðarljósi.

Umferð ferðamanna um Kjöl hefur aukist verulega undanfarin ár, og er nú talið að fjöldi gesta á Hveravöllum sé allt að 30-40 þúsund á sumri. Metnaðarfullt deiliskipulag hefur verið gert fyrir svæðið þar sem gert er ráð fyrir hálendismiðstöð, en sú uppbygging  er kostnaðarsöm og vandséð hvernig að henni verður staðið. Á hinn bóginn er ljóst að bæta verður grunnþjónustu á Hveravöllum, til dæmis hreinlætisaðstöðu. Umtalsverðar úrbætur hafa verið gerðar í því efni til bráðabirgða að undanförnu, og borun eftir neysluvatni síðastliðið vor lofar góðu. Jafnframt var borað eftir heitu vatni sem nýta mætti til raforkuframleiðslu, og tókst það vonum framar. Áður en ráðist verður í frekari uppbyggingu þessara innviða þarf að huga að framtíðarsýn fyrir Hveravelli og leita raunhæfra leiða að henni. Málþinginu er ætlað umtalsvert hlutverk í því efni, og vonast skipuleggjendur þess til góðrar þáttöku af hálfu allra sem láta sig varða uppbyggingu ferðaþjónustu á hálendinu.

Nánari upplýsingar, drög að dagskrá og skráningarform er að finna á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra: www.ssnv.is . Athugið að þáttaka í málþinginu er án endurgjalds, en óskað er eftir því að áhugasamir láti vita af áhuga sínum með því að skrá sig á vefsíðu málþingsins .