Fara í efni

Iceland Guest í VAKANN

María Erlendsdóttir og Hafdís Þóra Hafþórsdóttir há Iceland Guest með viðurkenningu VAKANS.
María Erlendsdóttir og Hafdís Þóra Hafþórsdóttir há Iceland Guest með viðurkenningu VAKANS.

Nýlega bættist í hóp VAKANS, gæða- og umhverfiskerfis ferðaþjónustunnar, ferðaskrifstofan Iceland Guest. Hún er dótturfyrirtæki Nordic Visitor sem þegar er í VAKANUM.

Iceland GuestFerðaskrifstofan sérhæfir sig í ódýrum pakkaferðum til Íslands og starfsfólk fyrirtækisins hefur mikla reynslu af því að aðstoða ferðalanga um allan heim til að upplifa það besta sem Ísland hefur upp á að bjóða.

Fyrirtækið býður upp á ýmsar tegundir ferða, meðal annars bílaleigupakka, hópferðir með leiðsögn, norðurljósaferðir, jóla- og áramótaferðir, borgarferðir til Reykjavíkur, gönguferðir og ævintýraferðir. Til að tryggja gæði þjónustunnar er hver og ein ferð klæðskerasniðin auk þess sem ferðaskrifstofan hefur frá upphafi aðeins starfað með birgjum sem hafa gild leyfi og góðan orðstý á Ísland.

Hlekkir: