Fara í efni

Gistinóttum fjölgaði um rúm 2% í júlí

Gisting juli 2008
Gisting juli 2008

Talning Hagstofunnar sýnir að gistinætur á hótelum í júlí síðastliðnum voru 201.500 en voru 196.800 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fjölgaði því um rúm 2% milli ára.

Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á höfuðborgarsvæðinu, þar sem gistinætur stóðu í stað á  milli ára. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Austurlandi, um 10% og á Suðurlandi um 8%. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum úr 11.400 í 12.600 og á Suðurlandi úr 30.400 í 32.800 á milli ára.

3% fjölgun  fyrstu sjö mánuði ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu sjö mánuði ársins voru 786.000 en voru 766.000 á sama tímabili árið 2007. Fjölgun varð á Suðurlandi um 13% og á höfuðborgarsvæðinu um rúm 2% milli ára. Gistinætur stóðu í stað eða fækkaði á öðrum landsvæðum, mest var fækkunin á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða eða um 2%. Fjölgun gistinátta fyrstu sjö mánuði ársins má aðallega rekja til Íslendinga, 9%. Gistinóttum útlendinga fjölgar um tæpt 1% á milli ára.

Hagstofan vekur athygli á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. Tölur fyrir árið 2008 eru bráðabirgðatölur.