Fara í efni

Gistinóttum fjölgaði um rúm 12% í janúar

Gisting janúar 08
Gisting janúar 08

Hagstofan hefur birt tölur um gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum. Reyndust þær hafa verið 57.200 talsins en voru 51.000 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fjölgaði því um 12% á milli ára.

Fjölgunin er mest á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi og Suðurlandi. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á höfuðborgarsvæðinu, úr 39.400 í 47.700 eða um 21%. Gistinóttum á Norðurlandi fjölgaði í janúar um rúm 8% á milli ára, úr 1.700 í 1.800. Á Suðurlandi  fjölgaði gistinóttum um tæp 4% frá fyrra ári, úr 2.800 í 3.000.

Á Austurlandi fækkaði gistinóttum í janúar hinsvegar um tæp 61% á milli ára, eða úr 1.800 í 700. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum um 25% milli ára, úr 5.200 í 3.900.

Fjölgun gistinátta á hótelum í janúar má aðallega rekja til Íslendinga, gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 22%  en gistinóttum útlendinga fjölgaði um rúm 8% milli ára.

Nánar á vef Hagstofunnar