Fara í efni

Gistinóttum fjölgaði um 7% á fyrri helmingi ársins

Ferðamálaráðstefnan 2004 nálgast
Ferðamálaráðstefnan 2004 nálgast

Hagstofan hefur birt tölur um fjölda gistinátta í júní síðastliðnum. Þar með liggja jafnframt fyrir tölur um gistináttafjölda á fyrri helmingi ársins.

Gistinóttum á hótelum í júní fjölgaði um 11% milli ára
Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 111.656 en voru 100.570 árið 2003. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Austurlandi. Aukningin var mest á Suðurlandi þar sem gistinætur fóru úr 12.511 í 14.816 milli ára og fjölgaði þar með um rúm 18%. Á Norðurlandi eystra og vestra nam aukningin tæpum 14% þegar gistinæturnar fóru úr 10.633 í 12.108. Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum 70.375 en voru 63.521 árið 2003, sem er aukning um tæp 11%. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði gistinóttum um tæp 8%, en gistináttafjöldinn fór úr 8.948 í 9.643 milli ára. Á Austurlandi fækkaði gistinóttum um tæp 5%, fóru úr 4.957 í 4.714.

Gistináttafjöldi á hótelum janúar-júní jókst um rúm 7% milli ára
Ef skoðaðir eru fyrstu sex mánuðir ársins miðað við árið í fyrra má sjá að gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum. Heildargistináttafjöldinn fyrir allt landið var 415.060 miðað við 386.441 árið 2003. Aukningin var þó hlutfallslega mest á Austurlandi, eða rúm 26%. Á öðrum landsvæðum nam aukningin 5-8% fyrir tímabilið janúar-júní. Tölur fyrir 2004 eru bráðabirgðatölur og eru tölur fyrir aðra mánuði ársins uppfærðar mánaðarlega.

Hlutfallsleg meiri fjölgun í gistinóttum Íslendinga
Gistinóttum Íslendinga fjölgaði hlutfallslega meira en gistinóttum erlendra hótelgesta. Í júní fjölgaði gistinóttum Íslendinga á hótelum um 18% á milli ára en erlendum hótelgestum fjölgaði um 10%. Sé litið til fyrstu 6 mánaða ársins fjölgaði gistinóttum Íslendinga um tæp 11% og gistinóttum útlendinga um rúm 6%.