Fara í efni

Gistinætur heilsárshótela í október

Gistinætur heilsárshótela í október

Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í október síðastliðnum. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast þannig hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

12% fjölgun í október 2013

Gistinætur á hótelum í október voru 158.500 sem er 12% aukning miðað við október 2012. Gistinætur erlendra gesta voru 77% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 11% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 17%.

Skipting eftir landshlutum

Á höfuðborgarsvæðinu voru 112.400 gistinætur á hótelum í október sem er fjölgun um 7% ef miðað er við október 2012. Á Suðurlandi voru gistinætur 17.400 í október sem er aukning um 29% frá fyrra ári. Gistinætur á Norðurlandi voru 12.500 í október og fjölgaði um 30%. Á Suðurnesjum voru 7.000 gistinætur í október sem er aukning um 23% frá fyrra ári. Gistinætur á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 4.800 og fjölgaði um 35% og á Austurlandi voru gistinætur 4.300 sem er 26% aukning samanborið við október 2012.

Þróunin frá áramótum

Gistinætur á hótelum fyrstu tíu mánuði ársins 2013 voru 1.792.879 til samanburðar við 1.589.796 fyrir sama tímabil árið 2012. Ef miðað er við sama tímabil árið 2012 þá hefur gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 13% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 11%