Fara í efni

Gistinætur heilsárshótela í maí

Gisting maí 2012
Gisting maí 2012

Hagstofan hefur birt tölur um gistinættur á hótelum í maí síðastliðnum. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið þannig að til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 15% í maí
Gistinætur á hótelum í maí voru um 139.700 samanborið við 120.500 í maí í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru um 82% af heildarfjölda gistinátta en gistinóttum þeirra fjölgaði um 17% miðað við maí í fyrra. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði einnig um 8% á sama tímabili.

Gistinætur á hótelum á höfuðborgarsvæðinu voru um 102.500 í maí, en það er fjölgun um tæp 20% frá fyrra ári. Á Norðurlandi voru um 9.400 gistinætur á hótelum í maí sem er um 18,5% aukning miðað við maí í fyrra. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 18,5%, voru 5000 en 4.200 í maí í fyrra. Gistinætur á Suðurlandi voru tæplega 13.100 sem er 4,5% aukning milli ára. Í öðrum landshlutum fækkaði gistinóttum milli ára. Á Suðurnesjum voru 4.800 gistinætur sem jafngildir 11% fækkun milli ára. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 4.400 gistinætur sem jafngildir 7,5% fækkun milli ára.

Nánar á vef Hagstofunnar