Fara í efni

Ferðahandbókin Á ferð um Ísland komin út

Á ferð um ísland 2009
Á ferð um ísland 2009

Á ferð um Ísland er nú komin út nítjánda árið í röð. Útgáfufélagið Heimur gefur ferðahandbókina út og er hún á þremur tungumálum, þ.e. íslensku, ensku og þýsku.

Enska útgáfan Around Iceland hefur komið út samfellt í 34 ár en þýska útgáfan Rund um Island kemur nú út í 12. sinn. Ritunum er dreift í 100.000 eintökum á alla helstu ferðamannastaði landsins, eða um fimm hundruð staði. Í bókinni er umfjöllun um hvern landshluta, þjónustulistar sem eru uppfærðir árlega í samstarfi við heimamenn, ásamt kortum þar sem gististaðir, tjaldsvæði og sundlaugar eru númeraðar á svæðum utan þéttbýlis. Sambærileg kort eru einnig frá helstu þéttbýlisstöðum landsins. Þá er einnig að finna hálendiskafla með hálendiskorti og þjónustulistum í bókinni. Fremst í bókinni er síðan að finna ýmsan fróðleik um land og þjóð, það helsta sem er á döfinni í sumar, afþreyingu og margt fleira.

Í frétt frá Heimi kemur fram að miklar vinsældir bókanna hafi fyrir löngu sannað gildi þeirra. Í fyrrasumar var gerð könnun meðal erlendra ferðamanna á notkun bókanna og kom í ljós, að meira en þriðjungur þeirra notaði bækurnar og 48% þýskumælandi ferðamanna notaði Rund um Island.

Fjöldi fallegra ljósmynda, m.a. eftir Pál Stefánsson, ljósmyndara Heims, skreyta bækurnar og er hægt að kaupa myndirnar á www.heimur.is. Auglýsingasala gerir kleift að dreifa bókunum ókeypis en í ár prýðir fjöldi nýrra auglýsingasíðna bækurnar. Margar af nýju auglýsingasíðunum hafa verið hannaðar hjá Heimi. Auk þess má geta þessa að bækurnar eru einnig birtar í vefútgáfu á www.heimur.is/world. Ritstjóri bókanna er Ottó Schopka.