Fara í efni

186 þúsund ferðamenn í júní

Ferðamenn í júní 2016Um 186 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í júní síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða nærri 50 þúsund fleiri en í júní í fyrra. Þá hafa brottfarir Íslendinga aldrei mælst jafn margar í einum mánuði.

Erlendum ferðamönnum heldur því áfram að fjölga á milli ára. Aukningin nemur 35,8% á milli ára í júní og frá áramótum nemur hún 35,3%. Nú hafa tæplega 700 þúsund erlendir ferðamenn komið frá áramótum, 183 þúsund fleiri en á sama tíma í fyrra.

Fjölmennustu þjóðerninFjórar þjóðir áberandi

Rúmur helmingur ferðamanna í nýliðnum júní voru af fjórum þjóðernum. Bandaríkjamenn voru langfjölmennastir eða tæp 30% af heildarfjölda. Næstir komu Þjóðverjar (9,3%), þar á eftir fylgdu Bretar (8,7% og Kanadamenn (7,0%).

Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Kanadamönnum, Bretum, Þjóðverjum, Svíum og Frökkum mest á milli ára. Þessar sex þjóðir báru uppi aukninguna í júní að miklu leyti. Af þeim var hlutfallsleg fjölgun mest frá Kanada en ferðamannafjöldinn þaðan ríflega tvöfaldaðist í júní. 

 


Mikil fjölgun N-Ameríkana frá 2010

Ferðamenn eftir markaðssvæðumÞegar litið er til fjölda ferðamanna í nýliðnum júní má sjá verulega fjölgun frá árinu 2010. Mest áberandi er fjölgun Bandaríkjamanna, úr 9 rúmlega í 69 þúsund. Þá hefur Mið- og Suður-Evrópubúum fjölgað úr um 17 þúsund í 40 þúsund á sama tíma. Fjöldi Breta hefur nærri þrefaldast. Heldur minni aukning hefur verið frá Norðurlöndunum en þó tæp 50%.

Hlutfall N-Ameríkana hækkar en Norðurlandabúa lækkar

Samsetning ferðamanan eftir markaðssvæðumSamsetning ferðamanna eftir markaðssvæðum hefur breyst töluvert frá árinu 2010 eins og sjá má af myndinni hér til hliðar. Í júní síðastliðnum voru Norðurlandabúar um 10,5% ferðamanna en hlutfall þeirra af heild hefur lækkað verulega síðustu ár, hefur farið úr 24% ferðamanna árið 2010. Hlutdeild N-Ameríkana hefur hins vegar farið vaxandi, var 17,2% af heild árið 2010 en var komin í 36,8% í ár. Hlutdeild annarra markaðssvæða hefur verið á líku róli á tímabilinu 2010 til 2016.

Ferðir Íslendinga utan

Um 67 þúsund Íslendingar fóru utan í júní síðastliðnum eða 19.300 fleiri en árið 2015. Um er að ræða 40,4% fleiri brottfarir en í júní 2015. Hafa brottfarir Íslendinga aldrei mælst fleiri í einum mánuði frá því að talningar Ferðamálastofu hófust en fyrra met var 54.800 í júní árið 2007. Ekki er ólíklegt að Evrópumótið í knattspyrnu hafi hér talsverð áhrif en í því sambandi vert er að slá þann varnagla að hugsanlega er óvenju algengt að um fleiri en eina brottför hjá sama einstaklingi sé að ræða. Slíkt er þó ekki hægt að segja fyrir um með neinni vissu.

Nánari upplýsingar

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum. Sá fyrirvari er á birtingu talanna nú að vegna sumarleyfa hefur ekki náðst að yfirfara þær með hliðsjón af farþegatölum Isavia, líkt og venja er.

 Ferðamenn í júní 2016 - tafla