Fara í efni

Starfsþjálfun á vinnustað, námskeið fyrir starfsþjálfa í ferðaþjónustu - Umsóknarfrestur

Háskólinn á Bifröst stendur fyrir námskeiði fyrir starfsþjálfa sem hentar öllum þeim sem koma að þjálfun starfsfólks innan ferðaþjónustufyrirtækja.


Á námskeiðinu kynnast þátttakendur mismunandi kennsluaðferðum og mikilvægi skapandi aðferða í námi og kennslu. Einnig er farið í gegnum leiðtogahlutverk starfsþjálfans og hvernig hægt sé að hvetja starfsfólk til þátttöku og ábyrgðar í sinni vinnu.

Samhliða fræðslunni fá þátttakendur tækifæri til þess að skipuleggja og framkvæma þjálfun á vinnustað þar sem aðferðir og hugmyndir af námskeiðinu eru notaðar. Þetta fyrirkomulag styrkir verðandi starfsþjálfa í sjálfstæðum vinnubrögðum undir handleiðslu.

Fyrirkomulag

Þjálfunin fer fram í sex lotum sem hver um sig leggur áherslu á ákveðna hæfniþætti sem eru þjálfaðir undir handleiðslu kennara. Í staðlotum sem eru þrjár mæta þátttakendur á Bifröst í 6 klst. í senn en þess á milli er gert ráð fyrir að þeir vinni sjálfstætt að verkefnum á vinnustað sem tengjast þeirra starfssviði. Kennsla hefst 19. janúar og staðlotur fara fram á Bifröst á tímabilinu 19. janúar til 2. febrúar.

Þátttökugjald er kr. 115.000 og innifalið eru námsgögn, veitingar og handleiðsla kennara. Umsóknarfrestur er til 5. janúar.

Nánari upplýsingar og skráning