Fara í efni

Ráðstefna um þolmarkarannsóknir - Síðustu forvöð að skrá sig

Þingvellir vetur
Þingvellir í vetrarham. Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson

Nú eru síðustu forvöð að skrá sig á ráðstefnuna næstkomandi miðvikudag, 25. maí, þar sem kynntar verða þolmarkarannsóknir og tengd verkefni sem Ferðamálastofa ákvað árið 2014 að láta ráðast í. Ráðstefnan verður á Grand Hótel Reykjavík kl. 13-16. Hún verður einnig send út á Netinu.

Eru ferðamenn of margir?

Ástæðu þess að Ferðamálastofa ákvað að láta ráðast í verkefnið má rekja til hinnar miklu fjölgunar ferðamanna hér á landi og þess álags sem af henni skapast. Því höfðu vaknað spurningar um hvort ferðamenn væru nú þegar of margir á vinsælustu áfangastöðum landsins.

Átta vinsælir staðir

Fyrst má telja verkefni sem snýr að átta vinsælum ferðamannastöðum á Suður- og Vesturlandi. Annars vegar var verkefnið að rannsaka þolmörk ferðamanna á áfangastöðunum og hins vegar að meta fjölda ferðamanna sem þangað koma. Anna Dóra Sæþórsdóttir dósent við Háskóla Íslands annaðist þann verkþátt sem snéri að þolmörkum og viðhorfum ferðamanna en dr.Rögnvaldur Ólafsson sá hins vegar um mat á fjölda ferðamanna.

Þolmörk heimafólks

Tengd verkefni snúa að rannsókn á samfélagsleg þolmörkum og viðhorfum heimafólks til ferðaþjónustu, sem Ferðamálastofa stendur að í samstarfi við Rannsóknamiðstöð ferðamála og Háskólann á Hólum og afmarkaðri verkefni sem sem lúta að þolmörkum náttúru og stýrt er af Rannveigu Ólafsdóttur, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands.

Dagskrá:

13-13:15: Setning ferðamálastjóra og ávarp ráðherra ferðamála
Ólöf Ýrr Atladóttir / Ragnheiður Elín Árnadóttir

13:15-13:50: Þolmörk ferðamanna á 8 stöðum
Anna Dóra Sæþórsdóttir / Þorkell Stefánsson
13:50-14:25 Talningar ferðamanna á 8 stöðum
Rögnvaldur Ólafsson / Gyða Þórhallsdóttir

14:25-14:45 Kaffihlé

14:45-15:20 Samfélagsleg þolmörk og viðhorf heimafólks til ferðaþjónustu 
Guðrún Helgadóttir / Edward H. Huijbens
15:20-15:45 Mat og greining vegslóða og utanvegaaksturs í Friðlandi að Fjallabaki
Hrafnhildur Loftsdóttir / Rannveig Ólafsdóttir
15:45-15:55 Rannsóknaverkefni undirstjórn Rannveigar Ólafsdóttur + Umræður
15:55-16:00 Lokaorð ferðamálastjóra

Skráning:

Ekkert þátttökugjald er á ráðstefnuna en nauðsynlegt að skrá sig hér að neðan.

Skráning á ráðstefnu um niðurstöður þolmarkarannsókna

Útsending:

Til að tengjast netútsendinu er farið inn á slóðina hér að neðan:

https://global.gotomeeting.com/join/780180997