Fara í efni

Sjálfbærni sem sóknarfæri? - Málþing

©arctic-images.com
©arctic-images.com

Fimmtudaginn 27. mars gengst Ferðamálastofa fyrir málþingi um sjálfbærni á Hótel Reykjavík Natura. Yfirskriftin er: "Sjálfbærni sem sóknarfæri? Ávinningur - Hindranir - Tækifæri". 

Innlendir og erlendir fyrirlesarar

Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála, ávarpar málþingið en fyrirlesarar eru bæði innlendir og erlendir. Allt er þetta fólk sem hefur látið sjálfbærni til sín taka með einum eða öðrum hætti.

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu afhent

Í lok málþingsins verða Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu fyrir árið 2013 afhent. Þau hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi.

Skráning

Þátttaka á málþinginu er án endurgjalds en nauðsynlegt er að skrá sig. Skráning fer fram hér á vefnum og er skráningarfrestur til og með 25. mars.

Skráningarfrestur er útrunninn

Dagskrá:

12:30 Skráning og afhending gagna.
13:00 Setning. Elías Gíslason, settur ferðamálastjóri.
13:10 Ávarp. Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála.
13:20 Sustainability – long term engagement at national, local and tour operator level.
-Ingunn Sörnes, verkefnisstjóri „Sustainable Tourism 2015“ hjá Innovation Norway.
13:55  Borgarfjörður eystri – Sjálfbært og seiðandi samfélag.
-Arngrímur Viðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Elf Tours.
14:15 Má gera hvað sem er, hvar sem er og hvenær sem er?
-Ásbjörn Björgvinsson, formaður Ferðamálasamtaka Íslands.
14:35 Kaffihlé
14:50 Staðbundin efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu.
-Vífill Karlsson, hagfræðingur.
15:10 Wildlife Tourism – the ultimate in sustainability.
-Sally Dowden, eigandi Speyside Wildlife í Skotlandi.
15:45 Vottaðir Vestfirðir- Skref til framtíðar.
-Lína Björg Tryggvadóttir, verkefnastjóri hjá Fjórðungssambandi Vestfjarða.
16:05  Why sustainability? The benefits of sustainable policy marketing at hostels world wide.
-Brianda López, Sustainable Development Coordinator of Hostelling International.
16:30 Samantekt. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá UMÍS ehf.
16:45 Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu afhent.
17:00 Léttar veitingar

Fundarstjóri er Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar.