Fara í efni

Nærri milljón ferðamenn frá áramótum

Ferðamenn í júlí 2016Um 236 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í júlí síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 55 þúsund fleiri en í júlí á síðasta ári. Aukningin nemur 30,6% milli ára.

Heildarfjöldi ferðamanna frá áramótum er um 936 þúsund, eða 34,1% fleiri miðað við fjölda ferðamanna á tímabilinu janúar til júlí árið 2015.

Bandaríkjamenn og Þjóðverjar ríflega þriðjungur ferðamanna

10 fjölmennustu þjóðerninUm 73% ferðamanna í nýliðnum júlí voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 25,7% af heildarfjölda en næstir komu Þjóðverjar, 10,7%. Þar á eftir fylgdu Bretar (7,7%), Frakkar (6,1%), Kanadamenn (5,2%), Svíar (3,8%), Danir (3,8%), Kínverjar (3,6%), Svisslendingar (3,1%) og Spánverjar (2,9%).

Sex þjóðernum fjölgaði mest í júlí. Þannig komu um 23.400 fleiri Bandaríkjamenn í júlí í ár en í júlí í fyrra, 5.200 fleiri Kanadamenn, 5.200 fleiri Þjóðverjar, 2.900 fleiri Svíar, 2.600 fleiri Bretar og 2.400 fleiri Frakkar. Þessar sex þjóðir báru uppi aukninguna í júlí að miklu leyti milli ára eða 75,2% af heildaraukningu.

Ferðamenn eftir markaðssvæðumSjöföldun N-Ameríkana frá 2010

Þegar litið er til fjölda ferðamanna í nýliðnum júlímánuði eftir markaðssvæðum má sjá nokkuð verulega fjölgun frá árinu 2010 frá sumum svæðum. Þannig hefur fjöldi ferðamanna frá N-Ameríku nærri sjöfaldast, fjöldi Breta þrefaldast og fjöldi Mið- og Suður Evrópubúa ríflega tvöfaldast. Fjöldi ferðamanna frá löndum sem lenda í hópnum ,,annað“ hafa nærri þrefaldast. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað minnst eða um 44,4% frá 2010.

Breytt samsetning eftir markaðssvæðum

Samsetning ferðamanan eftir markaðssvæðumSamsetning ferðamanna eftir markaðssvæðum hefur breyst töluvert frá árinu 2010 eins og sjá má af myndinni hér til hliðar. Í júlí síðastliðnum voru Norður Ameríkanar 30,9% af heildarfjölda en hlutdeild þeirra var ekki nema 12,7% árið 2010. Hlutfall Mið- og Suður Evrópubúa og Norðurlandabúa hefur hins vegar lækkað verulega frá árinu 2010. Hlutdeild Breta og annarra markaðssvæða hefur hins vegar staðið í stað.

Ferðir Íslendinga utan

Um 55 þúsund Íslendingar fóru utan í júlí síðastliðnum eða 10.800 fleiri en árið 2015. Um er að ræða 24,3% fleiri brottfarir en í júlí 2015.

Nánari upplýsingar

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Tafla yfir fjölda ferðamanna