Fara í efni

Dyrfjöll – Stórurð, gönguparadís fékk Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu

Umhverfisverðlaun 2016

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, veitti verðlaunin í lok fjölsótts Ferðamálaþing í Hörpu í dag. Á myndinni eru talið frá vinstri: Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri; Hjörleifur Finnsson, verkefnisstjóri í umhverfismálum hjá Ferðamálastofu; Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Fljótsdalshérðas; Jón Þórðarson, sveitarstjóri í Borgarfjarðarhreppi; Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum hjá Ferðamálastofu og Ragnheiður Elín.

Verkefnið Dyrfjöll – Stórurð, gönguparadís hlaut í dag Umhverfisverðlaun Ferðamálstofu fyrir árið 2016. Verkefnið var unnið í samstarfi tveggja sveitarfélaga, Borgarfjarðarhrepps og Fljótsdalshéraðs, og er dæmi um það hvernig samvinna getur leitt til góðra verka.

Þjónustuhús StórurðBætt aðgengi og aðstaða

Verkefnið felst í að bæta aðgengi að og styrkja göngusvæði Stórurðar og Dyrfjalla með stikun og lagfæringu göngustíga, merkinga, uppsetningu upplýsingaskilta og –korta og síðast enn ekki síst byggingu þjónustuhúss.

Þjónustuhúsið bætir ekki aðeins úr margfrægum skorti á salernisaðstöðu heldur virkar það sem upphafsreitur eða gátt inn á svæði sem áður bjó ekki yfir skýrum upphafsstað eða útgangspunkti.

Frumleg og stílhrein hönnun

Hönnun arkitektsins Rönning Anderssen er í senn frumleg og stílhrein og nýtir sér sérstöðu og svip Dyrfjalla. Verkefnið styrkir sjálfbæra ferðamennsku gönguferða á ferðmannasvæði sem þolir meiri nýtingu, eykur öryggi ferðamanna, eflir lýðheilsu, stuðlar að náttúruvernd og eykur staðarstolt heimamanna.

Styrkir alla þrjá helstu þætti sjálfbærrar þróunar 

Verkefnið er því til þess fallið að styrkja alla þrjá helstu þætti sjálfbærrar þróunar: 

  • - hinn efnahagslega með því að draga að fleiri ferðamenn og fá þá til að dvelja lengur,
  • - hinn náttúrulega með því flytja stíga af blautum svæðum og upplýsingum til ferðamanna og
  • - hinn félagslega með því að draga fram sérstöðu svæðisins og auka staðarstolt heimamanna.

Veitt árlega frá árinu 1995

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og var þetta því í 22. sinn sem þau voru afhent. Undanfarin ár hefur sá háttur verið að á að velja verðlaunahafa úr tilnefningum sem borist hafa Ferðamálastofu. Hafa ýmis fyrirtæki í ferðaþjónustu, sem skarað hafa fram úr í umhverfismálum í starfi sínu, hlotið verðlaunin.

Fyrirmyndarverkefni styrkt af Framkvæmdasjóði

Í ár var breytt til og verðlaunin veitt fyrir verkefni en ekki til fyrirtækja. Nánar til tekið, verkefni sem hlotið hafa styrk úr Framkvæmdasjóði ferðmannastaða á tímabilinu 2014-2016 og eru til fyrirmyndar. Það þýðir að verkefninu sé lokið, reglum framkvæmdasjóðsins fylgt og það hafi verið í samræmi umhverfistefnu Ferðamálstofu og áherslur Framkvæmdasjóðsins um sjálfbæra þróun og gæði hönnunar og skipulags.

--------------------------------------------------------------------------

VerðlaunagripurUm verðlaunagripinn:

Verðlaunagripurinn ber heitið ,,Sjónarhóll“ og eru höfundar hans Jón Helgi Hólmgeirsson og Védís Pálsdóttir. Hugmyndin bakvið gripinn er hvernig hægt er að upplifa náttúruna frá mismunandi sjónarhornum og þá einstöku upplifun hvers og eins að nálgast áfangastað.

Látúnstangir mynda þrívíðan hól úr uppréttum hæðarlínum á meðan línuteikningar bæta við hólinn hlíðum og árfarvegum. Hóllinn varpast í speglum sem myndar nýjar víddir eftir því hvaðan á er litið. Sjónarhóll er í senn náttúran, samspilið við hið manngerða og sjónarhornið sem upphefur upplifunina.