Fara í efni

158 þúsund ferðamenn í október

Ferðamenn í október 2016Um 158 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í október síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 59 þúsund fleiri en í október á síðasta ári. Aukningin nemur 59,7% milli ára.

Fjöldi ferðamanna hefur ríflega fjórfaldast frá árinu 2010 en mest hefur þó aukningin verið síðustu tvö ár en þá hefur fjöldinn meira en tvöfaldast. Heildarfjöldi ferðamanna frá áramótun er um 1,5 milljón eða 36,2% fleiri miðað við fjölda ferðamanna á tímabilinu janúar til október árið 2015. 

Bandaríkjamenn og Bretar tveir af hverjum fimm ferðamönnum

10 fjölmennustu þjóðerninUm 74% ferðamanna í nýliðnum október voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 21,9% af heildarfjölda og Bretar næst fjölmennastir eða 19,7% af heild. Þar á eftir fylgdu Kanadamenn (6,3%), Þjóðverjar (6,0%), Kínverjar (4,1%), Norðmenn (3,7%), Danir (3,4%), Frakkar (3,4%), Svíar (3,0%) og Hollendingar (2,2%).

Bandaríkjamönnum fjölgaði langmest milli ára í október eða um 18.600 manns og voru þeir meira en tvöfalt fleiri í ár en í fyrra. Bretum fjölgaði um sjö þúsund manns í október sem er um 20% aukning frá því í fyrra, Kanadamönnum um 6.400 sem er tæplega þreföldun frá því í fyrra og Þjóðverjum um 3.700 sem er um 63,9% aukning frá því í fyrra. Þessar fjórar þjóðir báru uppi 60,3% af aukningu ferðamanna milli ára í október.

Ferðamenn eftir markaðssvæðumFjöldi N-Ameríkana hefur meira enn áttfaldast

Þegar litið er til fjölda ferðamanna í nýliðnum októbermánuði má sjá verulega fjölgun frá árinu 2010 eða ríflega fjórfalda aukningu. Fjöldi ferðamanna frá N-Ameríku hefur meira en áttfaldast, fjöldi Breta nærri fimmfaldast, fjöldi ferðamanna frá Mið- og S-Evrópu meira en fjórfaldast og fjöldi ferðamanna sem lenda í hópnum ,,annað“ tæplega sexfaldast. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað minna en þeir hafa nærri tvöfaldast á tímabilinu 2010-2016.

Hlutfall N-Ameríkana hækkar en Norðurlandabúa lækkar

Hlutfall ferðamanan eftir markaðssvæðumSamsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2010 eins og sjá má af myndinni hér til hliðar. Í október síðastliðnum voru Norðurlandabúar 11,9% ferðamanna en hlutfall þeirra af heild hefur lækkað verulega síðustu ár. Hlutdeild N-Ameríkana hefur hins vegar farið vaxandi og hið sama má segja um hlutdeild þeirra sem lenda í hópnum ,,annað“. N-Ameríkanar voru 15,7% af heild árið 2010 en voru orðnir 28,2% árið 2016 og hlutdeild þeirra sem falla undir ,,annað“ voru 17,8% af heild árið 2010 en var komin í 24,5% árið 2016. Hlutdeild Breta og Mið- og S-Evrópubúa hefur verið á líku róli á tímabilinu 2010 til 2016. 

Ferðir Íslendinga utan

Um 50 þúsund Íslendingar fóru utan í október eða 5.300 fleiri en í október árið 2015. Um er að ræða 11,9% fleiri brottfarir en árið 2015.

Nánari upplýsingar

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Ferðamenn í október 2016