Fara í efni

144 þúsund ferðamenn í júlí

Myndrit fjöldi ferðamanna í júlíUm 144.500 erlendir ferðamenn fóru frá landinu í júlí síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða um 21.000 fleiri en í júlí í fyrra. Aukningin nemur 17% milli ára. Vart þarf að taka fram að aldrei hafa jafn margir ferðamenn verið hér í júlí og nú og raunar aldrei fleiri í einum mánuði.

Bandaríkjamenn fjölmennir sem fyrr

Myndrit 10 fjölmennustu þjóðernin í júlí 2013 og 2014Bandaríkjamenn voru líkt og í júní fjölmennastir eða 15,9% af heildarfjölda ferðamanna í júlí en næstfjölmennastir voru Þjóðverjar eða 12,5% af heild. Skáru þessar tvær þjóðir sig nokkuð úr en næst komu Bretar (8,7%), Frakkar (7,4%), Danir (5,9%), Norðmenn (4,6%) og Svíar (4,4%). Samtals voru 10 fjölmennustu þjóðernin með 70% af heildarfjölda ferðamanna.

Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Þjóðverjum, Bretum, Kanamönnum, Kínverjum og Svíum mest á milli ára. Þessar sex þjóðir báru að stórum hluta uppi aukninguna í júlí eða um 70% af heildaraukningu.

Tvívegis áður meiri fjölgun í júlí

Myndrit þróun í fjölda ferðamanna frá markaðssvæðumFerðamenn voru ríflega þrisvar sinnum fleiri í júlí í ár en þeir mældust í sama mánuði árið 2002. Fjölgun hefur verið öll ár á þessu tímabili og tvívegis hefur þeim fjölgað meira á milli ára en nú, þ.e. í júlí 2007 og 2011.

Þegar einstök markaðssvæði eru skoðuð má sjá að frá árinu 2010 er góð fjölgun frá öllum svæðum. Bandaríkjamönnum hefur fjölgað mest en þeir hafa nærri þrefaldast. Bretar og þeir sem taldir eru sameiginlega undir „Annað“ hafa u.þ.b. tvöfaldast. Nokkru minni fjölgun er frá Mið- og Suður Evrópu en þó 50%. Norðurlandabúum hefur fjölgað 30% frá árinu 2010.

546 þúsund ferðamenn frá áramótum

Það sem af er ári hefur rúmlega hálf milljón ferðamanna farið frá landinu, nánar tiltekið 546.353 eða um 111 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Um er að ræða 25,6% aukningu ferðamanna milli ára frá áramótum í samanburði við sama tímabil í fyrra. Veruleg aukning hefur verið frá flestum mörkuðum; N-Ameríkönum og Bretum hefur fjölgað mest, hvorum um sig um tæp 40%, Mið- og S-Evrópubúum um 16%, og ferðamönnum frá öðrum mörkuðum um 30%. Norðurlandabúum hefur hins vegar ekki fjölgað í sama mæli eða um 10%.

Ferðir Íslendinga utan

Um 39 þúsund Íslendingar fóru utan í júlí síðastliðnum, um 6.200 fleiri en í júlí árið 2013. Frá áramótum hafa 224.443 Íslendingar farið utan eða 10,2% fleiri en á sama tímabili árið 2013.

Nánari upplýsingar

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Tafla yfir fjölda ferðamanna