Um notkun á könnuninni
Í meðfylgjandi samantekt eru niðurstöður sumarkönnunar Ferðamálaráðs 2004 settar fram í myndrænu formi. Með hverri mynd er vísað til viðeigandi taflna þar sem finna má nánari niðurstöður. Einnig er sér síða með tengingum í allar töflur.
Í töflum 2.xx má finna svör sem flokkuð eru eftir þjóðerni svarenda, markaðssvæðum og ferðamáta til landsins. Í töflum 3.xx má finna svör flokkuð eftir kyni, aldri, starfsstétt, tekjum, tilgangi ferðar, tegund ferðar, gistimáta og landshluta sem gist var í.
Framkvæmd
Um var að ræða brottfararkönnun sem fór fram í Leifsstöð og á Seyðisfirði (júní til ágúst).
Spurningalistum var dreift af handahófi og svarendur fylltu hann sjálfir út.
Spurningalistinn var á ensku, dönsku, þýsku, frönsku, ítölsku og spænsku.
Spurt var m.a. um ákvörðunarferlið varðandi Íslandsferðina, ferðahegðun á Íslandi, útgjöld og viðhorf svarenda til einstakra þátta ferðaþjónustunnar.
Á könnunartímabilinu var farið í 51 heimsókn í Leifsstöð, 27 morgna, 22 síðdegi og 2 kvöld. Úrtak var tekið fjóra morgna á Seyðisfirði.
Spurningalistum var dreift til 3.139 gesta. Til baka bárust 2.574 listar, þar af 2.507 nothæfir. 1916 gestir neituðu að svara, 983 karlar og 933 konur.
Þýðið
166.973 erlendir gestir fóru úr landi um Leifsstöð á tímabilinu 1.júní-31. ágúst. 21% gesta voru frá Norðurlöndunum, 15,7% frá Þýskalandi, 13,8% frá N-Ameríku, 13,3% frá Bretlandi og 8,4% frá Frakklandi.
Um 8.000 fóru með Norrænu ferjunni á sama tímabili.