Góðir staðir - leiðbeiningarit
Á ferðamálaþingi í október 2011
var meðal annars kynnt ritið „Góðir staðir“ sem er leiðbeiningarrit um uppbyggingu ferðamannastaða. Ritið er unnið í samstarfi
Ferðamálastofu, Framkvæmdasýslu ríkisins og Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Ritinu er ætlað að hjálpa ferðaþjónustuaðilum, forsvarsmönnum sveitarfélaga, félagasamtökum og öðrum framkvæmdaaðilum við skipulag og uppbyggingu áfangastaða ferðamanna. Áhersla er lögð á mikilvægi góðs undirbúnings og vandvirkni. Því er þannig ætlað að byggja brú á milli sveitarfélaga og ríkis annarsvegar og hönnuða og framkvæmdaaðila hinsvegar. Ritinu er einnig ætlað að vera hvatning til þeirra fjölmörgu aðila sem standa að uppbyggingu ferðamannastaða á Íslandi öllu að vanda til verka því enginn vafi leikur ´að náttúran og landið okkar eiga það skilið.
Í inngangi að ritinu segir meðal annars : „Náttúruperlur landsins eru ómetanlegur hluti af þjóðararfleifð okkar. Við uppbyggingu ferðamannastaða þarf að hafa í huga að vandað verk samanstendur af þremur órjúfanlegum þáttum undirbúningi, hönnun og framkvæmd. Ávallt skal leggja áherslu á gæði, fagmennsku og vandvirkni og hafa skal í huga að ábyrg ferðaþjónusta stuðlar að verndun menningar og náttúrulegs umhverfis. Að baki vel heppnaðar framkvæmda er vönduð hönnun og góður undirbúningur.
Starfshópur við gerð ritsins skipuðu:
Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt FAÍ, sem jafnframt er ritstjóri;
Halldóra Vífilsdóttir arkitekt FAÍ, verkefnisstjóri hjá Framkvæmdasýslu ríkisins; Kristín Gunnarsdótti,
verkefnisstjóri hjá Hönnunarmiðstöð Íslands og Sveinn Rúnar Traustason, umhverfisstjóri, Ferðamálastofu.
Ábendingum um efni þess má koma til ritstjóra á netfangið sturludottir@gmail.com Tengill á ritið er hér að neðan.