Fara í efni

Áskorun um kröfulýsingu – Thomsen Travel ehf.

Ferðaskrifstofuleyfi Thomsen Travel ehf., kt. ,630909-0660, Borgartúni 8, 105 Reykjavík, hefur verið fellt úr gildi þar sem ferðaskrifstofurekstri hefur verið hætt.

Starfsemi ferðaskrifstofunnar var tryggingaskyld vegna sölu pakkaferðar og samtengdrar ferðatilhögunar samkvæmt VII. kafla laga nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Samkvæmt 25. gr. er tryggingunni ætlað að endurgreiða fé sem viðskiptavinur hefur greitt vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar.

Með vísan til 27. gr. er hér með skorað á þá viðskiptavini fyrirtækisins, sem telja sig eiga kröfu á hendur því, sbr. ofangreint, að leggja fram skriflegar kröfulýsingar í tryggingarféð innan 60 daga frá birtingu áskorunar þessarar.
Kröfulýsingum skal beint til Ferðamálastofu, Hafnarstræti 91, 600 Akureyri. Með henni skulu fylgja nauðsynleg sönnunargögn um kröfuna, svo sem farseðlar og kvittanir.
F. h. Ferðamálastofu,
Nanna Björnsdóttir, lögfræðingur.
mail@ferdamalastofa.is
Sími 535 5500