Fara í efni

Vinnustofur í Suður Evrópu í október 2017 - Skráning

Íslandsstofa stendur fyrir vinnustofum í Suður Evrópu fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu dagana 16.- 19. október 2017. Haldnar verða vinnustofur í borgunum Madrid og Barcelona á Spáni og í Mílanó og Torino á Ítalíu

Á vinnustofunum gefst fyrirtækjum gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskipta¬samböndum við spænska og ítalska ferðaþjónustuaðila. Boðið verður upp á stutta kynningu um áfangastaðinn Ísland fyrir gesti vinnustofanna svo og kynningu á spænska og ítalska ferðaþjónustumarkaðinum fyrir íslensku þátttakendurna.

Verð og skráning:

Verð pr. vinnustofu er að hámarki kr. 150.000 á fyrirtæki (1-2 starfsmenn). Athugið að ferðakostnaður er ekki innifalinn í verði. Þeir sem bóka sig á alla fjóra staðina hafa forgang.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur verði komnir til Madrid fyrir 16. október. Reiknað er með að hópurinn gisti og ferðist saman.

Áhugasamir eru hvattir til að fylla út skráningarblað á vef Íslandsstofu og senda á á sigridur@islandsstofa.is fyrir 19. maí nk.

Þeim sem óska eftir frekari upplýsingum er bent á að hafa samband við Sigríði Ragnarsdóttur, sigridur@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.