Fara í efni

Vinnustofur í Póllandi

Íslandsstofa skipuleggur þrjár vinnustofur í Póllandi fyrir aðila í ferðaþjónustu dagana 22.- 24. maí nk. Fyrsta vinnustofan verður haldin í Gdansk 22. maí, þann 23. maí liggur leiðin til Varsjár og að lokum verður farið til Krakow þar sem þriðja vinnustofan fer fram 24. maí.

Á vinnustofunum gefst fyrirtækjum gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskipta¬samböndum við innlenda ferðaþjónustuaðila.

Verð og skráning:

Verð pr. vinnustofu er að hámarki kr. 250.000 á fyrirtæki (1-2 starfsmenn). Ferðakostnaður er ekki innifalinn í verði. Vinsamlegast athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Reiknað er með að hópurinn gisti og ferðist saman.

Áhugasamir eru beðnir um að fylla út og senda inn skráningarform á vef Íslandsstofu fyrir 10. febrúar nk.

Nánari upplýsingar veitir Oddný Arnarsdóttir, oddny@islandsstofa.is.