Fara í efni

Vinnustofur fimm landa í London

Íslandsstofa undirbýr nú þátttöku í vinnustofu sem haldin verður 31. janúar 2018 í London. Um er að ræða sameiginlega vinnustofu Íslands, Finnlands, Grænlands, Eistlands og Færeyja.

Á vinnustofunni gefst fyrirtækjum í ferðaþjónustu kostur á að hitta og mynda viðskiptasambönd við aðila úr hópi ferðasala á breska markaðinum.

Vinnustofan verður haldin á sama stað og undanfarin ár eða í HAC viðburðarhöllinni sem er staðsett í miðbæ London.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og gildir því reglan fyrstur kemur - fyrstur fær. Þeir sem hafa hug á að skrá sig eru beðnir að fylla út meðfylgjandi skráningareyðublað og senda á netfangið oddny@islandsstofa.is
fyrir 30. október nk.

Nánari upplýsingar veitir Oddný Arnardóttir, oddny@islandsstofa.is eða í síma 511 4000