Fara í efni

Vakantiebeurs í Hollandi

Íslandsstofa vekur athygli á ferðasýningunni Vakantiebeurs sem stendur yfir dagana 9.- 13. janúar 2019 í Utrecht, Hollandi. Sýningin er haldin árlega og er stærsta ferðasýningin á hollenska markaðinum en á síðasta ári sóttu hana um 109 þúsund manns.

Á Vakantiebeurs býðst fyrirtækjum í ferðaþjónustu gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskiptasamböndum í Hollandi og víðar. Ísland verður með eigin sýningarbás undir merkjum Inspired by Iceland, ef næg þátttaka fæst.

Kostnaður og skráning

Kostnaður veltur á fjölda þeirra fyrirtækja sem taka þátt á Íslandsbásnum. Fyrirtækjum gefst kostur á að deila afgreiðsluborði til að lækka þátttökukostnað sinn.
Áhugasamir um þátttöku eru beðnir að fylla út skráningarform á vef Íslandsstofu fyrir 29. ágúst nk., en þar er einnig að finna upplýsingar um verð.
Nánari upplýsingar veitir Katarzyna Dygul, katarzyna@islandsstofa.is eða í s. 847 8552.

Sjá einnig vefsíðu Vakantiebeurs.