Fara í efni

Tækifæri ferðaþjónustunnar í stafrænum heimi – Morgunfundur

 

Ferðamálastofa í samstarfi við Íslenska ferðaklasann býður til morgunfundar um stöðu ferðaþjónustunnar í stafrænum heimi. Fundurinn verður haldinn í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 2. maí og hefst kl. 8:30.

Með fundinum vilja Ferðamálastofa og Íslenski ferðaklasinn leggja sitt að mörkum til að vekja umræðu og gera íslenska ferðaþjónustu meðvitaða um þær öru tæknibreytingar sem eru að verða í heimi ferðaþjónustunnar. Þar koma m.a. við sögu síaukin samþætting snjalltækja við daglegt líf okkar, kröfur um hraðara þjónustu og betra aðgengi að upplýsingum.

Þekktur alþjóðlegur fyrirlesari

Meðal fyrirlesara á fundinum er Bandaríkjamaðurinn Doug Lansky. Hann er vinsæll höfundur ferðabóka, ásamt því að vera eftirsóttur alþjóðlegur fyrirlesari og ráðgjafi í ferðamálum. Doug hefur ferðast um heiminn mörg undanfarin ár og greint frá upplifunum sínum með gamansömum hætti í blaða- og tímaritsgreinum undir nafninu Vagabond, sem birst hafa í ýmsum blöðum sem margir kannast eflaust við.

Dagskrá:

  • Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, setur málþingið
  • Bárður Örn Gunnarsson, eigandi Svartatinds
  • Soffía Kristín Þórðardóttir, forstöðumaður Ferðalausna Origo
  • Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Arctic Adventures
  • Doug Lansky, höfundur ferðabóka, alþjóðlegur fyrirlesari og ráðgjafi í ferðamálum

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, stýrir fundinum.

Skráning

Þátttaka er án endurgjalds en nauðsynlegt að skrá sig: Smelltu hér fyrir skráningu

Fundurinn verður einnig sendur út beint á Netinu (þarf ekki að skrá sig) og kemur slóð inn á www.ferdamalastofa.is.

Kynningar fyrirtækja og frumkvöðla

Sérstök athygli er vakin á því að fyrirtækjum og frumkvöðlum á sviði tæknilausna í ferðaþjónustu stendur til boða að kynna starfsemi sína á meðan á fundinum stendur í fordyri salarins.

Áhugasamir aðilar eru beðnir að hafa samband fyrir lok dags 26. apríl næstkomandi með því að senda póst á netfangið stafraennheimur@ferdamalastofa.is fyrir nánari upplýsingar um skipulag og kostnað. Athugið að takmarkað pláss er í boði og því ekki víst að allir komist að sem vilja.