Fara í efni

Ráðstefna um flugmál - Akureyri - Flogið í rétta átt

Markaðsstofa Norðurlands og flugklasinn Air 66N munu standa fyrir ráðstefnu um flugmál þann 3. maí 2018 á Akureyri. Ath. að um nýja dagsetningu er að ræða frá upphaflegri auglýsingu.

Á ráðstefnunni mun fulltrúi Super Break verða með erindi þar sem rakin verður reynsla bresku ferðaskrifstofunnar af því að fljúga fólki til Akureyrar, hvert framhaldið verður hjá þeim og dregið fram hversu mikil áhrif þessar flugferðir hafa fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi. Einnig verður rætt um Akureyrarflugvöll, hvernig staðan er og hvað þarf til að völlurinn geti sinnt sem best auknu millilandaflugi. Jafnframt verður rætt um tengingu Akureyrar við Keflavíkurflugvöll og stöðu innanlandsflugs á landinu.

Nánari upplýsingar og skráning á vorráðstefnuna