Norræn vinnustofa í París í nóvember - skráning
Íslandsstofa, ásamt Innovation Norway, Visit Denmark og Visit Finland standa fyrir norrænni vinnustofu í París 22. nóvember nk. Vinnustofan er haldin í tengslum við svonefnda „Be Nordic“ daga í París og verða Norðurlöndin kynnt sem spennandi áfangastaðir, sem og norrænn lífsstíll.
Íslandsstofa heldur utan um þátttöku íslenskra ferðaþjónustuaðila á vinnustofunni en þar gefst fyrirtækjum gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskiptasamböndum við franska ferðaþjónustuaðila.
Verð og skráning:
Kostnaður við þátttöku er 1.600 € á fyrirtæki (1.900 € fyrir tvo starfsmenn).
Innifalið í þátttökugjaldi er:
• Móttökuborð
• Kynning þátttökufyrirtækis í bæklingi, á vefsíðu vinnustofunnar, og á fleiri miðlum
• Markaðsupplýsingar um franska ferðaheildsala sem skrá sig til þátttöku
Athugið að ferðakostnaður er ekki innifalinn í verði.
Áhugasamir eru beðnir um að fylla út skráningarform á vef Íslandsstofu fyrir 11. júlí. Vinsamlega athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Helga Jóhannsdóttir, margret@islandsstofa.is