Hvernig má mæta kröfum nútíma ferðamanna?
Ferðalausnir Origo bjóða til hádegisverðarfundar á Vox Club fimmtudaginn 22. mars kl. 12:00-14:00.
Komdu og kynntu þér hvernig má bæta þjónustu og upplifun ferðamanna á bílaleigubílum með Caren hugbúnaðarlausninni.
Dagskrá
• Hvernig mun Caren Rental mæta kröfum nútíma ferðamanna
- Soffía K. Þórðardóttir, forstöðumaður Ferðalausna Origo
• Þróun og horfur á bílaleigumarkaði á Íslandi
- Óðinn Valdimarsson, ERGO
• Betri upplifun ferðamanna með Caren bílaleigulausn
- Steinar Atli Skarphéðinsson, verkefna- og vörustjóri Ferðalausna Origo
• Hvað þýðir GDPR fyrir bílaleigur og bókunarvefi?
- Arna Hrönn Ágústsdóttir, lögfræðingur Origo
Síðast en ekki síst verður frábær hádegisverður í boði (djúsí hamborgari og franskar).
Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig.