Fara í efni

Hagnýt vinnustofa - Ábyrg ferðaþjónusta

Íslenski ferðaklasinn / Iceland Tourism og Festa, samfélagsábyrgð fyrirtækja

Sýnum ábyrgð – hrindum markmiðum í framkvæmd!

Þér er boðið á hagnýta vinnustofu þann 16. nóvember þar sem við förum yfir leiðir til að hrinda markmiðum Ábyrgrar ferðaþjónustu í framkvæmd og birta þau á vefsíðum fyrirtæksins. Þátttakendur mæta með tölvuna sína og bretta upp ermar. Nokkur fyrirtæki sem vel eru á veg komin munu sýna hvernig þau fara að og kynnt verða gagnleg tól og tæki.

Skráðu þig hér: https://goo.gl/rX1FZb

Hvenær: 16. nóvember 2017, kl. 10.00 – 12.00
Hvar: SAF, Borgartúni 35
Fyrir hverja: Fyrirtæki sem skráð eru í fræðsludagskrá fyrir Ábyrga ferðaþjónustu

Markmið vinnustofu:
– Eftir vinnustofuna geti þátttakendur birt markmiðin á vef sínum.
– Þátttakendum fá hagnýt tól til að setja fram skýr markmið um ábyrga ferðaþjónustu
– Dæmi frá ferðþjónustufyrirtæki sem hafa sett sér markmið

Dagskrá 10.00-12.00

Inngangur: Kynning á fjórum þáttum um Ábyrga ferðaþjónustu
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Ferðaklasanum

Hagnýt tól til markmiðasetningar um Ábyrga ferðaþjónustu
Fyrirlesari kynntur síðar

Unnið í fjórum vinnuhópum að markmiðasetningu:
– Umhverfismarkmið – hvernig ætlum við að virða náttúruna? – Elding með sýnidæmi
– Öryggismál og heilindi – hver er öryggisáætlun okkar og hvernig komum við fram við ferðafólk af heilindum? – Bílaleiga Akureyrar með sýnidæmi
– Réttindi starfsfólks – hver er mannauðsstefna okkar? – Farfuglar með sýnidæmi
– Jákvæð áhrif á nærsamfélagið – hvernig er samfélagsstefna okkar? – Friðheimar með sýnidæmi

Fundarstjóri: Ketill Berg Magnússon, Festu