Fara í efni

Ferðasýningin FITUR á Spáni

Íslandsstofa tekur þátt í ferðasýningunni FITUR í Madrid dagana 17.- 21. janúar 2018. Sýningin er haldin árlega og er stærsta ferðasýningin á spænska markaðinum. Á síðasta ári sóttu hana um 245 þúsund manns, þar af um 136 þúsund ferðaþjónustuaðilar.

Á FITUR býðst fyrirtækjum í ferðaþjónustu gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskipta¬samböndum. Sýningin er tvískipt; fyrri hluti hennar, 17.- 19. janúar, er fyrir fagfólk (B2B) en dagana 20. og 21. janúar er sýningin einnig opin almenningi (B2C).

Ísland verður, eins og á FITUR 2017, með þjóðarbás á sérstöku Evrópusvæði og sýnir þar undir merkjum Inspired by Iceland.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni á sýningarbás Íslandsstofu eru vinsamlegast beðnir að senda eyðublað sem finna má á vef Íslandsstofu útfyllt á netfangið sigridur@islandsstofa.is fyrir 8. júní nk.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ragnarsdóttir, sigridur@islandsstofa.is eða í síma 897 7950.

Sjá einnig vefsíðu FITUR.

Lilly-Anne
Bellayre Foxhills Road
Lytchett Matravers, Dorset
BH16 6BD
UK